Í þessu árferði er ekki forsvaranlegt að beita niðurskurðahnífnum fyrst gegn fátækasta fólkinu í landinu, námsmönnum, öryrkjum, ófrískum konum, barnafólki eða öðrum þeim sem minnst hafa á milli handanna. Námsmönnum er ætlað að lifa af 100 þúsund krónum á mánuði sem er langt undir öllum fátækrar og velsæmismörkum og það er skömm að því.
Það er ekki með nokkru móti hægt að réttlæta það ríkisstarfsmenn séu með miljón á mánuði í laun. Sanngjarnt væri að lækka alla hátekjumenn ríkisins verulega. Íslenska ríkið hefur ekki efni á að borga svona há laun. Nú þarf bara að skipta peningunum á milli fólksins. Það geta allir lifað góðu lífi með 3-400 þúsund krónur á mánuði. Það er hinsvegar ekki hægt að lifa mannsæmandi lífi með undir 200 þúsund krónur á mánuði eins og er verið að bjóða fólki upp á í stórum stíl.
Ekki einfalt að lækka laun ríkisstarfsmanna" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sæl Anna Margrét.
Ég er hjartanlega sammála þér.
Ég er nú með rúmlega 150,þús. á mánuði og þarf að reka mig í samfélagainu eins og hinir og þar fyrir utan er mikil lyfja og sjúkrakostnaður. Og allar þessar hækkanir á mig nema í launum!
Kveðja
Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 15.6.2009 kl. 09:37
Þeir þurfa bara ekkert að vera með hærri laun en hinir Guðmundur! Er það svona sem að þú talar alltaf niður til kvenna!
Anna Margrét Bjarnadóttir, 15.6.2009 kl. 10:44
Það myndi einungis valda stórfelldum flótta besta fólksins frá hinu opinbera í einkageirann eða jafnvel úr landi. Þó að ég sé ekki hlynnt ofurlaunum er fráleitt að lækka hæstu laun niður í 3-400 þús. Það er auk þess staðreynd að of lág laun hjá hinu opinbera ýta undir spillingu og mútuþægni og það er nú kannski ekki það sem við þurfum mest á að halda núna.
Solveig (IP-tala skráð) 15.6.2009 kl. 10:49
Þetta er eiginlega bara heimskuleg uppástunga bæði hjá þér og stjórnvöldum. Svona launaþök og lækkanir, þó þær séu hannaðar fyrir einhverja 3-5 sýnilega bankatoppa, koma mest niður á sérfræðingum, einmitt fólkinu sem auðveldast á með að færa sig í önnur störf hjá einkageiranum og auðveldast með að fá vinnu í útlöndum. Hvaða heilvita, vel menntaða, manneskja myndi nokkurn tímann taka á sig 2-300 þ.kr. launalækkun bara til þess að vinna hjá ríkinu?
johnny (IP-tala skráð) 15.6.2009 kl. 12:43
Það er allt of mikill launamunur á Íslandi. Það er allt of mikill munur á þeim sem hafa há laun og lág laun. Ykkur finnst sem sagt réttlætanlegt að niðurskurðahnífnum sé beitt fyrst og fremst gegn þeim sem hafa minnst á milli handanna? Finnst ykkur allt í lagi að námsmenn séu með 100 þúsund krónur á mánuði? Finnst ykkur í lagi að það sé verið að skerða laun öryrkja, kvenna í barnseignaleyfi, atvinnuleysisbótum og svo framvegis.
Ætli það sé ekki hægt að skipta peningunum réttlátar á milli fólks þannig að það sé ekki svona mikill tekjumunur. Ég segi það er skelfilegt hvernig viðhorf fólks hér á Íslandi eru gagnvart láglaunafólki. Það er orðin föst í hausnum á fólki stéttaskipting og ójöfnuður og fólk er orðið svo brenglað að það sé í lagi. Það er eins og réttlætingin hjá honum Guðmundi hér að ofan að ef að þeir sem hæst laun hafa væru lækkaðir niður í 3-400.000 að þá væri eðlilegt að allir hinir ríkisstarfsmennirnrir væru lækkaðir niður í 150.000. Ég segi nei, það er ekkert eðlilegt. Það þarf ekkert að vera svona mikill munur á launum fólks. Það er mjög óeðlilegt að hjá ríkinu starfi annars vegar fólk með miljón á mánuði og hinsvegar fólk með undir 200.000. Þar með er verið að stuðla að ójöfnuði. Það er nauðsynlegt að jafna kjörin og minnka þennan launamun.
Að sjálfsögðu á að beyta niðurskurðahnífnum fyrst á þeim sem hafa há laun. Annað er heimska og bara ómannúðlegt.
Anna Margrét Bjarnadóttir, 15.6.2009 kl. 19:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.